Ne bara spá :)
Annars bara flott hjá þessum gæja! Þetta ætla ég líka að gera áður en ég verð fertug
|
Nakinn á sundi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 8.10.2008 | 02:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég er rauður djöfull.
Ég hef verið það frá því ég man eftir mér. Ekki því að fjölskyldan mín, vinirnir eða fólkið sem ég umgengst mest voru öll í Manchester United heldur ,,þróaði” ég þetta sjálf. Herbergið mitt var þakið plakötum af köppunum mínum á meðan stelpur á mínum aldri voru með myndir af Backstreet Boys eða eitthvað ennþá verra. Uppáhaldið mitt var Andy Cole nr. 9, en ekki David Beckham, þó hann hafi verið mjög góður á sínum tíma. Ég flutti svo í bæinn og byrjaði að djúsa alltof reglulega og einhvern veginn hætti að fylgjast með boltanum. Það var ekki fyrr en um síðustu áramót sem ég fór að horfa aftur á leiki og fylgjast stíft með. Minnkaði djammið og horfði alltaf á alla leiki og heldurðu að mitt lið hafi ekki bara dúndrað 2 titla ;).
Að horfa á Cristiano Ronaldo spila er augnakonfekt, hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera allan tímann, þvílík tilþrif, kraftur, snerpa og er meira að segja farinn að standa aftur í lappirnar eftir að hann fellur. Ég var ekki lengi að kynna hann sem kallinn minn, enda skammaðist ég mín ekkert fyrir hann ;)
Alex Ferguson er meistari, hann er snillingur. Hann veit nákvæmlega hvernig hann fær það besta úr öllum leikmönnum og nær því út úr þeim. Cristiano Ronaldo er núna á toppnum! Hann er náttúrulegur talent en það þarf alltaf að móta og bæta sum svið og það hafa þeir kappar algjörlega gert. Ég efast stórlega um að Ronaldo hefði náð þetta góðum árangri ef hann hefði haldið áfram hjá Sporting.
Núna í dag er allt í rugli.
Real Madrid sýnir enga stjórnun á sér og er búið að koma öllum í óöryggi um framtíð Man U og framtíð Ronaldo.
Sepp Blatter, forseti FIFA, er búinn að koma fram og gjörsamlega skíta langt uppá bak með því að segja að Ronaldo sé þræll hjá Man U og ,,við” ættum að sleppa honum til Real. Sepp Blatter er fífl. Hann fékk svo heiðursorðu hjá Real næsta dag?
Real Madrid er í tómu hassi, þeir eiga flest öll blöðin þarna á Spáni, enda er maður búinn að heyra núna á hverjum degi síðan við unnum Ensku úrvalsdeildina að Ronaldo og öll fjölskylda hans vilji að hann fari til Real og yadayadayada, en þó aðallega frá vafasömu Spænsku dagblöðunum.
Núna er Ronaldo byrjaður að væla svo mikið að fólk er komið með ógeð af honum. Ég styð mitt lið útí gegn og svona vanvirðing við liðið er fáranleg. Ég er brjáluð og ég vona bara að hann fari til Real Madrid og skjóti sig ærlega í löppina.
|
Ferguson: Óheppilegt hjá Blatter |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 28.7.2008 | 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)

Bloggar | 17.7.2008 | 15:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég er nú enginn snillingur í fjölmiðlafræði en fór nú í þann áfanga og lærði að þessi frétt er ILLA skrifuð.
Það vantar allar upplýsingar í hana..
Sorry, ég varð... bjó á Vesturgötunni og þætti gott að vita til dæmis hvar þetta væri á Vesturgötunni? Hvað var húsið gamalt? Tók langan tíma að slökkva eldinn? Smitaði hann mikið út frá sér? Var þetta stór eldur? Fór einhver á sjúkrahús? Jafnvel mynd.
|
Eldur á Vesturgötu í morgun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 4.7.2008 | 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er viss sjarmi yfir Hróaskeldu. Ég fór bæði '06 og '07.
Þær hátíðir voru rosalegar, 2006 hátíðin var sú heitasta og sveittasta en hin aftur á móti sú kaldasta og blautasta, nokkurn tímann.
Þegar það var sól þá labbaði fólk um í nærfötum og bikinium eða jafnvel allsbert, á tánum, í niðurstappaðri kúamykju. Þá fann maður 2 ákveðnar lyktir, mjög sterka hlandlykt sem var utan í öllum girðingum, hliðum og veggjum eða þá að einhverjir voru að reykja smá doobie. Tilfinningin sem maður fær úti á Hróa er frelsi. Allir eru svo rólegir, engin slagsmál, nauðganir, rifrildi, ofneysla á dói né áfengi (tjah). Þarna á þessari hátíð eru ca. 100.000 manns með starfsmönnum og það koma örsjaldan upp lögreglumál.
Hvað fara margir á Þjóðhátíð í Eyjum? 10.000 manns tops. Þar koma upp 5-20 nauðganir, 50-100 fíkniefnamál, skemmdarverk, ölvunarakstur? Æi ég veit ekkert tölurnar eða atvikin. En kommon, væri þá ekki betra að bjóða bara uppá bjór og doobie? Halda liðinu í rólegu og æðislegu eins og á Hróa :)
Það eru líka svo margir sem reykja ekki venjulega og fara þangað og fá sér eina jónu eða svo bara því þeir eru á Hróa og það er það sem er gert þar. Það var bara einn strákur sem ég mætti á Hróa sem var á spítti. Hann líka ætlaði að lumbra á öllum.... ætli hann hafi verið Íslendingur?
Þetta kemur alveg í bylgjum. Ætli það sé meira hass og gras á Hróa heldur en var nokkurn tímann á Woodstock? Heeeld ekki ;)
ps. ég hef aldrei reykt og er mjög kaldhæðin í dag og ekki að spara ýkjur :)
Make Love, Not War.
kv.
Peace Dís.
|
Allt í hassi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 4.7.2008 | 14:02 (breytt kl. 14:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er ekki í lagi? Það liggur við að maður fremji smá glæp til að komast í sæluna.
Í staðinn fyrir að vera utan fangelsis og borga fyrir allt ruglið sem er að hækka uppúr öllu valdi þá færðu ,,hótelherbergi", tölvuaðgang, kvöldvökur og afþreyingu, góðan mat sem þú eldar SJÁLF, heimsóknir næstm alltaf þegar þú vilt, vinnu í húsinu, skóla í húsinu, læknisaðstoð í húsinu, vinirnir í húsinu og tjah kúrufélagarnir. Þetta er bara kósý heimavist, ekkert annað!
Núna fæ ég örugglega komment frá bandbrjáluðum Hraunsföngum því þeir hafa það svo gott að vera með netpunga.
Kv,
Dísa, fangi í draumi.
|
Fleiri fangar elda sjálfir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 4.7.2008 | 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þessi frétt minnir mig ískyggilega mikið á Nip Tuck þátt. Þar sem að ,,vonda konan" og sæta stelpan sem Christian var hrifinn af voru að stunda þetta, skera upp manneskju og ræna úr þeim hjartað og selja á svörtum markaði. Svipaður söguþráður var líka í myndinni Turistas, með Josh Duhamel
. Ferðalangar að ferðast í Brazilíu og villast inní þorp þar sem þeim er rænt og reynt að skera þau í tuskur til að selja líffærin.
Hvernig er þetta hægt? Drepa konu sem er ólétt, taka áhættuna á að barnið myndi lifa og skera það út og ætla síðan að ala það upp? Hvaða partur finnst þér vera MEST sick? Þetta er viðurstyggð. Langar að sálgreina þessa konu. Greyjið drengurinn.
Er þetta að gerast í Evrópu líka svo við vitum ekki af? Pottþétt! Kannski er einhver butcher á Egilsstöðum sem slátrar pólverjum? Hver veit, kannski er svona að gerast í næstu íbúð við þig, akkúrat núna.
Dísa, sem er alls ekki á móti Egilsstöðum né duglegum Pólverjum :)
|
Skar barn úr móðurkviði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 1.7.2008 | 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Íslendingar eru að springa úr fitu!
Fórum í gærkvöldi í 10-11 að kaupa eitthvað að narta í yfir So you think you can dance.
Löbbuðum meðfram óhollustuganginum.. já það er heill gangur svona 20 metrar af óhollustu og uppsprengdu verði. Sáum poka af blandi í poka á 550 krónur sem hafði í gamla daga verið á 300 kr. Sáum hnetupoka á 600 kr og lítinn Maruud poka á hátt í 600 KRÓNUR :o Ekki nóg með það að verðið sé búið að hækka tvöfalt þá hefur pokinn sjálfur minnkað um helming! Við ætluðum nú ekki að láta þau taka okkur í ósmurt og fórum yfir í vesældarlegan grænmetis og ávaxtaganginn. Keyptum paprikur, gulrætur, gúrkur og blómkál, eina gosflösku og vogaídýfu. Man ekki eftir að hafa keypt mikið meira en það. Fyrir smá hollustu greiddum við 3.000 krónur, tek það fram að þetta var ekki mikið magn af grænmeti, einn poki af baby carrots, ein gúrka, 2 paprikur, blómkálshaus og ein vogaídýfa!! Hefðum við kannski frekar átt að kaupa okkur 5 snakkpoka?
Það sem ég er að reyna koma fram hérna er að það er að verða miklu, miklu dýrara að kaupa hollustu heldur en óhollustu, er skrítið að fólk sé farið að fitna langt um hóf fram? Eins og fjárhagur Íslendinga er þessa dagana er ekki skrítið að fólk kaupi sér franskar í staðinn fyrir eina papriku.
Það sem gerði mig alveg nógu pirraða til þess að skrifa þessa færslu hérna er það að ég er að vinna á skrifstofu og við vorum að fá í pósti, bækling frá Dominos þar sem var verið að láta okkur vita að þeir væru búnir að bæta við eftirverðarlistann sinn, súkkulaðihúðaðar vöfflur og brownies. Einmitt það sem Íslendingar þurfa, sykurhúðaðan eftirrétt eftir feitu olíuborna pizzuna sína sem þeir kyngdu niður með ísköldu koffínmiklu kóki.
Pizzufyrirtæki eru fyrirtæki sem ota að manni meiri fitu. Ef þú ert ein og vilt fá 9 tommu pizzu heimsenda er það ekki hægt nema þú kaupir eitthvað til að bæta við uppí 1500 kr. Þá er yfirleitt ekki nóg að kaupa 9 tommu og hálfan líter af kóki.
Núið er líka fyrirtæki sem að otar að manni fitu. Ég hef aldrei unnið eitthvað hollt á Núinu, aðeins hamborgaratilboð með kokteilsósu.. eða máltíð með fitudjúpsteiktum fisk, kartöflum og kokteilsósu.
Lenti líka í því um daginn að fara út í Aktu Taktu til að kaupa mér staka samloku. Svo á leiðinni út fékk ég tilboðsmiða þar sem er sagt að ef ég borga 10 kr meira þá fæ ég miðstærð af gosi, kokteilsósu og franskar með.
kv
Dísa, sem er komin með ógeð af óhollustu.
Bloggar | 1.7.2008 | 11:18 (breytt kl. 11:58) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þetta er svakalegt. Þetta minnir mig á þegar við fórum um 50 krakkar í 9nda bekk úr Kópavogsskóla í Danmerkurferð. Fórum að sjálfsögðu í Tivoli og ætluðum öll að skemmta okkur rosa vel þar síðasta kvöldið. Einn hópurinn fór í gamla rússíbanann og heyrðust þvílík öskur og læti stuttu seinna. Vinkonur mínar fundu þvílíka brunalykt og sáu neista undir vagninum fyrir framan sig og munaði mjög litlu að það hefði kviknað í þeirra vagni.
Pælið í hræðilegri tilfinningu að vera beltaður fastur niður í tæki, kannski með fullt af ungum krökkum, á þvílíkum hraða og það er að kvikna í sætinu hjá þér. Engin undankomuleið!
En sem betur fer var náð að stöðva vagnana áður en það gjörsamlega kviknaði í. Fólkið sem kom þaðan gjörsamlega skalf á beinunum og margir grétu. Á öryggið að vera í toppmálum?? Hvernig getur svona gerst? Ég er engin securityteinagella en gleymdist kannski bara að smyrja teinana?!
Ekki reeeeyna að segja mér í framtíðinni að öll tæki séu safe! :O Er orðin soldið chicken eftir að hafa upplifað þetta með þeim.
Ég hef farið í nokkur virkilega scary!
Rólurnar í Tivoli (DK), þær eru þannig að þú situr á spítu með þunna járnlengju yfir þér, en ég held ekki á milli lappanna og svo er svona rólukeðja sem heldur þér á meðan þú flýgur á smá hraða í 50-60 metra hæð yfir borginni og ef einn keðjubútur myndi slitna myndir þú ekki einu sinni hanga fastur heldur bara pompa niður og slettast í jörðina :) Fallegt tilhugsun? Ég líka táraðist þarna uppi!!
Svo var það gamla trétækið ógurlega í Terra Mytica (Benedorm) þar sem það var svo gamalt að það ýskraði hátt í því eins og á bremsulausum bíl! Kannski átti það að vera sjarmi við tækið en ég var dauðhrædd :)
Hvað er hræðilegasta tæki sem þú hefur farið í?
|
Lést í rússíbanaslysi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 30.6.2008 | 19:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ég hef aldrei heillast af mönnum sem eru kvenlegri en konur. Það er löngu komið nóg af þessu.
Er líka ekki frekar skrítið, að sumar stelpur heillist af strákum sem eru eins líkir stelpum og þeir mögulega geta? Ef þeir væru með brjóst og ekki eitthvað danglandi milli lappana, þá væru þær lesbískar.
Af hverju geta karlmenn ekki bara verið karlmenn? :) Það er alveg hægt að vera snyrtilegur karlmaður en ekki fara yfirum og klæðast bleiku, vera með mýkri húð en konur, mála ykkur, vera með fleiri skartgripi en kvenmenn o.s.frv., o.s.frv. :)
Dísa who likes manly men :)
|
Hnakkarnir dottnir úr tísku |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 30.6.2008 | 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)

dramafikill